Það er óhætt að segja að spennan magnist, því sýningarplássið okkar hjá Brimborg við Bíldshöfða 6 er nánast alveg fullt. Það stefnir því í stærstu Bronco-sýningu Íslandssögunnar! Allt hófst þetta með fyrstu sýningunni okkar þann 14. ágúst 2024 og síðan þá hefur boltinn rúllað og samfélagið eflst.
Þetta verður sannkallaður fjölskyldudagur þar sem kjörið er að taka alla ættina með. Bjóðum afa og ömmu sem muna eftir gömlu góðu tímunum, enda ólust margar kynslóðir upp í þessum merku jeppum. Mætum svo með börn og barnabörn til að kynna fyrir þeim þessa mögnuðu bílaarfleifð.
Sjáumst hress á Bíldshöfðanum!
Ford Bronco - 60 ára afmælissýning! 🚗🎈
Event in Reykjavík, Höfuðborgarsvæðið, Ísland by Ford á Íslandi - Brimborg on Laugardagur, ágúst 29 2026 with 599 people interested and 119 people going.
Síðast breytt: