• Velkomin Skráning fer fram hér uppi í horni hægra megin ->
    Á þessum vef er að finna fleiri þúsund myndir af íslenskum Bronco bílum, leitast er við að safna sögu og upplýsingum um sem flesta Ford Bronco bíla á Íslandi. Verið dugleg að senda inn myndir og skrifa nokkur orð um þá bíla sem þið þekkið nú eða spyrjast fyrir um aðra sem ykkur langar að fræðast um. Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna eða eitthvað er að.
    ---> Athugið: Stjórnandi þarf að fara yfir nýja aðganga og leyfa, handvirkt. Það getur tekið einhverja stund.

Þetta verður eitthvað!!

Geiri

Stjórnandi
Stjórnandi
bronco-60-1x1.png
Aðeins 2 vikur
í stóru Bronco-veisluna þann 29. ágúst!
🚗
🔥

Það er óhætt að segja að spennan magnist, því sýningarplássið okkar hjá Brimborg við Bíldshöfða 6 er nánast alveg fullt. Það stefnir því í stærstu Bronco-sýningu Íslandssögunnar! Allt hófst þetta með fyrstu sýningunni okkar þann 14. ágúst 2024 og síðan þá hefur boltinn rúllað og samfélagið eflst.

Þetta verður sannkallaður fjölskyldudagur þar sem kjörið er að taka alla ættina með. Bjóðum afa og ömmu sem muna eftir gömlu góðu tímunum, enda ólust margar kynslóðir upp í þessum merku jeppum. Mætum svo með börn og barnabörn til að kynna fyrir þeim þessa mögnuðu bílaarfleifð.
Sjáumst hress á Bíldshöfðanum!

 
Síðast breytt:
Til baka
Top Bottom