• Velkomin Hér sérðu þú brot af rúmlega 2000 myndum sem safnast hafa. Skráning fer fram hér uppi í horni hægra megin ->
    Á þessum vef er leitast við að safna sögu og upplýsingum um sem flesta Ford Bronco bíla á Íslandi. Verið dugleg að senda inn myndir og skrifa nokkur orð um þá bíla sem þið þekkið nú eða spyrjast fyrir um aðra sem ykkur langar að fræðast um. Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna eða eitthvað er að.
    ---> Athugið: Stjórnandi þarf að fara yfir nýja aðganga og leyfa, handvirkt. Það getur tekið einhverja stund.

Skemmtilegar Bronco fréttir

Bronco.is - Appið

Android 3.jpg
Smellið á tengilinn->

Kína boddý fyrir Bronco? $$$

Bronco.webp
Hvað kostar nýtt boddý á1966 til 1977 Ford Bronco frá Kína?
Þetta er tiltölulega nýr kostur sem vert er að skoða vel.
Boddíin koma samsett og grunnuð.

Við sendum fyrirspurn til framleiðandans á Alibaba og fengum þessi svör.
Boddý = 8000$ Isk = 1.000.720
Sending til Íslands = 3500$ Isk = 438.000
Sending til Rotterdam = 500$ Isk = 62.500



Ofan á þetta leggjast svo innflutnings skattar og gjöld.
Þetta er satt að segja alls ekki dýrt. Það er jafnvel svo að ekki borgi sig að setja mikla vinnu í viðgerðir hér heima.
Ánægju stuðullinn við að vita af 100% ryðlausum bíl er hár
Innflutningur á stökum pörtum getur hlaupið á 100 þúsunda og þá eru samsetningar og undir vinna eftir.
Ofan á það bætist að hætta á ryði eða göllum er töluverð. Við búum jú í mjög erfiðu landi.

Það er áhugavert að vinna með Rotterdam hugmyndina og ná jafnvel betra verði sjálfur til Íslands með Norrænu eða öðrum leiðum.
Það myndi þá kosta smá umstang.

Það er gaman að fylgjast með umræðum í USA en þar eru þessi boddí með umboðsaðilla og seljast býsna vel
Margir hverjir gefa þeim góða dóma og segja þau ekki síðri en til dæmis boddí frá Dennis Carpenter sem sögð eru gerð í USA.
Eins hafa margir bent á að nú þegar sé flestir partar sem seldir eru í USA framleiddir í austurlöndum.

Óskum lesendum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs 🎅

Y132 jól.jpgVið óskum lesendum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Megi nýja árið reynast okkur Bronco vænt og færa okkur gjafir og gleði 🎅

Hér til hliðar er glæsilegur og jólalegur Bronco, Ólafs Sæmundssonar
Árgerð 1974 V8 302

Forna færi

Smá myndband af Forna í snjónum.
Það þarf bara smá föl til að gleðja okkur 😅

Óneitanlega flottur þessi!!

Þetta er óneitanlega flott og vantar í íslenkska spyrnu menningu

Heimsóknir nýlega

Gallerí: myndaspjall

Tölfræði spjallborðs

Þræðir
2,305
Umræður
2,675
Félagar
264
Nýjasti meðlimurinn
Sporður
Til baka
Top Bottom