• Velkomin Hér sérðu þú brot af rúmlega 2000 myndum sem safnast hafa. Skráning fer fram hér uppi í horni hægra megin ->
    Á þessum vef er leitast við að safna sögu og upplýsingum um sem flesta Ford Bronco bíla á Íslandi. Verið dugleg að senda inn myndir og skrifa nokkur orð um þá bíla sem þið þekkið nú eða spyrjast fyrir um aðra sem ykkur langar að fræðast um. Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna eða eitthvað er að.
    ---> Athugið: Stjórnandi þarf að fara yfir nýja aðganga og leyfa, handvirkt. Það getur tekið einhverja stund.

M362

Geiri

Stjórnandi
Stjórnandi
Ein mynd er til af þessum bíl. Ekki er vitað hvar á landinu myndin er tekin og ekkert um bílinn eða eigendasögu hans.
Bíllinn virðist vera árgerð 1966 það gefa hjólkoppar og speglar til kynna.
Upplýsingar óskast!

M362.jpg
 
Magnús Trausti Ingólfsson - Segir á FB síðu "Bílar á M númerum"
Myndin er tekin við Ferjukot í átt að Hvítárbrúnni Hvítárvellir í bak,Sigvaldi Arason tók myndina..Ég átti þennan bíl rúm þrjú ár 1971-74.Seldi hann þá vini mínum Böðvari Björgvins Borgarnesi hann áttu síðar nokkrir menn í Borgarnesi.
 
Til baka
Top