Olilux
Félagi
1974 | Bíllinn er framleiddur í Flint Michigan 6 Mai 1974 og fluttur til Íslands 1975 |
1975 | Fyrsta skráning er 21.08.1975 þegar Magni Jónsson þá læknir á Seyðisfyrði kaupir bílinn hjá Sveini Egilssyni í Reykjavík. Bíllinn fær númerið "S1192". Hann var nokkuð hrár að innan og með lítin bekk afturí. Ragnar Valsson í Kópavogi innréttar bílinn og eru sett í hann græn sæti og stór bekkur afturí. Bílnum er velt í Eyjafirði í Júní 1976 og fer heilan hring og endar à hjólunum. Toppurinn rifnaði frá frampóstinum og alveg aftur. Þarþegar og lausir hlutir þeyttust út rétt eins og allar rúður. |
1976 | VIS borgar út bílinn og lætur gera við hann. |
1977 | Annar eigandi er Sveinn Runólfsson sem kauðir bílinn 17.05.1977 og er bíllinn setur á númer "L121". Um 1984 er bíllinn tekin í gegn þar sem hann er farin að ryðga nokkuð. Það eru komin göt á frambrettin. Hann er hækkaður upp á fjöðrum og bodýi og settur á 31“ dekk. Hann er sprautaður dökk grænn (var upprunalega ljósgrænn) og plast bretti eru sett á að framan. Efri afturhlerinn er orðin lélegur og skröltir mikið. Sveinn lætur loka efri afturhleranum og setja stóra glugga í og fasta hillu. Síðan er bíllinn klæddur hólf í gólf hjá Ranganri Vals og bök framstólana eru hækkuð upp. |
1997 | Þriðji eigandi er Sveinn Skúlason, lögmaður, sem kaupir bílinn 13.05.1997 til að nota á jörð sinni Hnúk í Dölum. Bílinn er seinast skoðaður árið 2000 samhvæmt bifreiðaskrá. Eftir að bremsukerfið bilar er honum lagt í hlöðu og stóð hann þar til 2016. |
2016 | Fjórði eigandi er Sigurður Eyberg Jóhannesson sem kaupir bílinn 30.12.2016 til að gera upp en gefur það upp á bátinn eftir að bílinn kemur til Keflavíkur. |
2017 | 06.01.2017 kaupi ég bílinn æi gegum frænda minn eftir að hann skoðaði bílinn í Keflavík. Bíllinn kemur til Lúx 6. 02.2017 |
Viðhengi
Síðast breytt: