• Velkomin Hér sérðu þú brot af rúmlega 2000 myndum sem safnast hafa. Skráning fer fram hér uppi í horni hægra megin ->
    Á þessum vef er leitast við að safna sögu og upplýsingum um sem flesta Ford Bronco bíla á Íslandi. Verið dugleg að senda inn myndir og skrifa nokkur orð um þá bíla sem þið þekkið nú eða spyrjast fyrir um aðra sem ykkur langar að fræðast um. Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna eða eitthvað er að.
    ---> Athugið: Stjórnandi þarf að fara yfir nýja aðganga og leyfa, handvirkt. Það getur tekið einhverja stund.

Númeraljós og breytingar, milli ára 1966 til 1977

Fróði

Félagi
Hélst þú að þinn Bronco væri eins og upprunalegur frá verksmiðju?
Þú gætir þurft að endurhugsa þetta því að Ford Bronco kom með tvær gerðir af perum fyrir númeraljósið. Það athyglisverða er að þessu var róterað svolítið á milli ára.

Förum aðeins yfir þetta hér að neðan.


Perurnar komu semsagt bæði tveggjapóla og svo með einum pól og perusætið því í stíl.
Athugið að líka er talað um peru #1232 með númeri #194

Tvær gerðir af perum.jpg

Perusæti fyrir tveggjapóla peru og svo fyrir peru með 1 pól
Dual poles.jpg One pole b.jpg

Sama peru teikning er fyrir allar árgerðir frá 1966 til 1977 (13550)
yfirlit.jpg

En þrjár númeraljósaperur eru skráðar?
númeraljós milli ára.jpg

66/70 er #1232 pera, með tveimur pólum
71/72 er #97 pera, með einum pól
73 er #1178 pera, með tveimur pólum
74 er #97 pera, með einum pól
75/77 er #1178 pera, með tveimur pólum
Breytingar hafa verið gerðar og 1232 skipt út fyrir 1178, báðar eru með sama Ford vörunúmer.


partalisti.jpg

RockAuto skráir númer #97 fyrir Bronco frá 1974 og perustæði af týpu #194 fyrir 1975-1977.

Þannig að Ford segir að mismunandi perur séu fyrir mismunandi árgerðir, en allar séu með sömu raflagnir?
Raflagnir í númeraljós hafa allar sama tengi stykki við rafkerfið svo sá sem smíðaði rafkerfið hefur þurft að breyta perustæðinu í samræmi.
Og oft hafa eigendur skipt út sprungnum perum og með því sem talið var rétt en aldrei spáð í póla.

Skoðið því perustæðið vel áður en keypt er.
 
Síðast breytt af umsjónarmanni:
Til baka
Top Bottom