• Velkomin Hér sérðu þú brot af rúmlega 2000 myndum sem safnast hafa. Skráning fer fram hér uppi í horni hægra megin ->
    Á þessum vef er leitast við að safna sögu og upplýsingum um sem flesta Ford Bronco bíla á Íslandi. Verið dugleg að senda inn myndir og skrifa nokkur orð um þá bíla sem þið þekkið nú eða spyrjast fyrir um aðra sem ykkur langar að fræðast um. Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna eða eitthvað er að.
    ---> Athugið: Stjórnandi þarf að fara yfir nýja aðganga og leyfa, handvirkt. Það getur tekið einhverja stund.

Tré féll á Ford Bronco í Alaska

Geiri

Stjórnandi
Stjórnandi
Instagram rásin Alaskaearlybroncos sem Ryan Cucullu stýrir tilkynnti nýlega að tré úr garði nágrannans hefði fallið á gamla Ford Bronco-inn hans og stórskemmt hann.

Mest eru þetta boddí skemmdir, toppur, hurð og húdd eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
En það sem vekur athygli er vídeóið sem hann birtir og þegar hann opnar húddið og við sjáum kveikjuna.

Ford er ódrepandi 💪

 
Til baka
Top