• Velkomin Hér sérðu þú brot af rúmlega 2000 myndum sem safnast hafa. Skráning fer fram hér uppi í horni hægra megin ->
    Á þessum vef er leitast við að safna sögu og upplýsingum um sem flesta Ford Bronco bíla á Íslandi. Verið dugleg að senda inn myndir og skrifa nokkur orð um þá bíla sem þið þekkið nú eða spyrjast fyrir um aðra sem ykkur langar að fræðast um. Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna eða eitthvað er að.
    ---> Athugið: Stjórnandi þarf að fara yfir nýja aðganga og leyfa, handvirkt. Það getur tekið einhverja stund.

Snowblind nýtt tónlistarmyndband með íslenskum Ford Bronco

Geiri

Stjórnandi
Stjórnandi
Í dag var frumsýnt á Vísi tónlistarmyndband við lag Ásgeirs Trausta, Snowblind.

Leikstjóri tónlistarmyndbandsins við Snowblind er Erlendur Sveinsson.
„Markmiðið var að skapa sjónrænt efni fyrir þetta magnaða lag og að byggja upp kraftmikla atburðarás sem byggir upp ímyndunarafl áhorfenda,“ segir Erlendur.
Myndbandið er unnið í samstarfi við Icelandair og eru Ásgeir og teymið hans þeim mjög þakklátir.


Bronco bíllinn sem ættaður er úr Reykjanesbæ ber númerið A854 og er árgerð 1974. Nokkrar myndir eru til í galleríi okkar af þessum bíl, en vel þegið væri að fá fleiri.


Við óskum Erlendi og félögum til hamingju með glæsilegt myndband og flott bíla val.
 
Síðast breytt:
Til baka
Top