• Velkomin Hér sérðu þú brot af rúmlega 2000 myndum sem safnast hafa. Skráning fer fram hér uppi í horni hægra megin ->
    Á þessum vef er leitast við að safna sögu og upplýsingum um sem flesta Ford Bronco bíla á Íslandi. Verið dugleg að senda inn myndir og skrifa nokkur orð um þá bíla sem þið þekkið nú eða spyrjast fyrir um aðra sem ykkur langar að fræðast um. Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna eða eitthvað er að.
    ---> Athugið: Stjórnandi þarf að fara yfir nýja aðganga og leyfa, handvirkt. Það getur tekið einhverja stund.

Fjalli fallinn frá

Geiri

Stjórnandi
Stjórnandi
Fallin er nú frá einn af þekktari Bronco mönnum landsins. Kross2.jpgMynd tekin af Jim Smart fyrir Morgunblaðið
Miðvikudaginn 19. janúar kvaddi Birgir Brynjólfsson eða Fjalli eins og hann var kallaður, þennan heim.
Þarna fell frá litríkur og sérstakur maður sem lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna.
Birgir ferðaðist mjög mikið um hálendi Íslands og var virkur í félagi F4x4.is.
Við vottum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur.
 
Síðast breytt:
Til baka
Top