• Velkomin Skráning fer fram hér uppi í horni hægra megin ->
    Á þessum vef er að finna fleiri þúsund myndir af íslenskum Bronco bílum, leitast er við að safna sögu og upplýsingum um sem flesta Ford Bronco bíla á Íslandi. Verið dugleg að senda inn myndir og skrifa nokkur orð um þá bíla sem þið þekkið nú eða spyrjast fyrir um aðra sem ykkur langar að fræðast um. Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna eða eitthvað er að.
    ---> Athugið: Stjórnandi þarf að fara yfir nýja aðganga og leyfa, handvirkt. Það getur tekið einhverja stund.
Efnisstjóri

AJ543

Númeraferill: AJ543 / R77055 / G7504 / R9848
Mynd: Sigurður Andri Sigurðsson

Myndin er af verkstæði sem afi rak fyrir áratugum síðan. Afi var semsagt Hjálmar Sigurðsson og tilheyrði húsið görðunum við Ægisíðuna. Sigurður Jónsson langafi minn rak útgerð og fiskverkun í þessu húsi ásamt öðru húsi sem stóð við hliðina áður en þarna var opnað verkstæði. Afi var með þetta verkstæði í 20-25 ár, ca frá sjötta áratugnum. Þessar myndir eru teknar líklega 1989. Ef skoðað er vel þá sést að símanumerið 15961 var áður 5961 á skiltinu. Einum var bætt við fyrir framan.

Chevillan var 72 módel 6 cyl en ég man ómögulega númerið á honum.

Maðurinn á myndunum sem eru teknar inná verkstæðinu er babbi heitinn að laga bronco sem ég átti. Bíllinn fór óheppilega á toppinn og þarna var skeytt saman tveim boddíum. Líklega var húsið rifið uppúr 1990 eða um það bil.
 

Mynd upplýsingar

Flokkur
1971 Ford Bronco á Íslandi
Sendandi
Efnisstjóri
Dags
Fjöldi áhorfa
73
Umsagna fjöldi
1
Einkunn
0.00 í einkunn 0 einkanir

Ýtarupplýsingar

Nafn
AJ543 1.jpg
Stærð
80.5 KB
Stærð myndar
1280px x 859px

Deila þessari mynd

Til baka
Top Bottom