• Velkomin Hér sérðu þú brot af rúmlega 2000 myndum sem safnast hafa. Skráning fer fram hér uppi í horni hægra megin ->
    Á þessum vef er leitast við að safna sögu og upplýsingum um sem flesta Ford Bronco bíla á Íslandi. Verið dugleg að senda inn myndir og skrifa nokkur orð um þá bíla sem þið þekkið nú eða spyrjast fyrir um aðra sem ykkur langar að fræðast um. Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna eða eitthvað er að.
    ---> Athugið: Stjórnandi þarf að fara yfir nýja aðganga og leyfa, handvirkt. Það getur tekið einhverja stund.
Efnisstjóri

DO510

Númeraferill: DO510 / G24549 / D623 / Ö8937 / H1681 / A1408 / Þ2373 / X3939 / Ö1136 / Ö4944 / R62868 / Y7063 / Y500
Björgvin T Guðmundsson Segir um þessa mynd:

Sá sem átti þennan heitir Árni Bragason þetta var 1972 árg af bíl, gríðarlega fallegur vagn á sýnum tíma. Stuðarinn var sérsmíðaður af Svenna sem átti Víkirvagna á sínum tíma fyrir bílabúðina H Jónson. Það átti að nota bílinn sem sýningaratriði á jeppasýningu í Laugardalshöllinni til að auglýsa Ramsey spil og átti að hífa hann upp á spilinu á klukkutíma fresti hangandi í krana. Eitthvað hafði Benni pata af þessu hjá Sveinbirni í H Jónson og setti allt á hliðina og neitaði að sponsa þessa sýningu og taka þátt í henni ef af þessu yrði. Þetta fékk hann í gegn enda sjálfur að selja Warn á þessum tíma, þannig að aldrei varð af þessu með að hífa hann upp.
 

Mynd upplýsingar

Flokkur
1972 Ford Bronco á Íslandi
Sendandi
Efnisstjóri
Dags
Fjöldi áhorfa
143
Umsagna fjöldi
1
Einkunn
0.00 í einkunn 0 einkanir

Ýtarupplýsingar

Nafn
DO510 2.jpg
Stærð
670.8 KB
Stærð myndar
1920px x 1389px

Deila þessari mynd

Til baka
Top