• Velkomin Hér sérðu þú brot af rúmlega 2000 myndum sem safnast hafa. Skráning fer fram hér uppi í horni hægra megin ->
    Á þessum vef er leitast við að safna sögu og upplýsingum um sem flesta Ford Bronco bíla á Íslandi. Verið dugleg að senda inn myndir og skrifa nokkur orð um þá bíla sem þið þekkið nú eða spyrjast fyrir um aðra sem ykkur langar að fræðast um. Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna eða eitthvað er að.
    ---> Athugið: Stjórnandi þarf að fara yfir nýja aðganga og leyfa, handvirkt. Það getur tekið einhverja stund.

Valið efni

Þræði 'Kíkt til fjalla'
Gamli Grænn var ræstur fyrstu helgi ársins og haldið til fjalla. Ekið upp Hrunamannaafrétt á laugardegi og gist í skála sem heitir Fosslækur og er suðvestur af Kerlingafjöllum. C.a. 15 stiga frost og norðan blástur. Á sunnudeginum var ekið yfir Jökulfallið á ís og þaðan inn á Kjalveg og þaðan til byggða. Frekar þungt færi á afréttinum en heldur léttara á Kjalvegi.
Hér er stutt myndband frá 50 ára afmælisviðburði Ford Bronco samfélagsins. Viðburðurinn var haldin á Esso Safninu i Súðarvogi 11. Mæting var strjál og bílar að koma fram á lokastund. en alls mættu 10 bílar og áætlað er 70 til 100 mans.
B1974
B1974 Bronnco Ólafs Sæmundssonar
Til baka
Top Bottom